mánudagur, maí 29, 2006

Afhroðið 

Ég lærði nýtt orðasamband á laugardagskvöldið við áhorf mitt á kosningavökuna á NFS. Að gjalda afhroð. Það voru allir að gjalda afhroð alls staðar á landinu þar sem illa gekk. Sigmundur Ernir gat ekki sagt þetta nógu oft.
Algjört afhroð. Eða eitthvað.

sunnudagur, maí 28, 2006

Veruleysi 

Vera var í láni hjá afa Sigga og ömmu Jónu frá því í gærdag og fram að háttatíma í kvöld. Ástæðan var engin sérstök, bara að gista hjá þeim og kynnast þeim betur. Og kannski gefa mömmunni og pabbanum smá "frí".

Strax eftir að ég skilaði Veru af mér helltist yfir mig þessi svakalega þreyta. Þegar maður er með krakkann er það einhvern veginn eins og maður keyri sig áfram á útopnu og leyfi sér einhvern veginn ekki að verða þreyttur. Svo strax og hún fór í lán varð ég svona líka svakalega þreytt að ég ætlaði varla að ná að keyra heim með opin augun. Lá svo uppi í sófa svaka hress eða þannig, undir teppi, á sjálfu kosningakvöldinu. Ég var þreytt og stóð mig líka að því að vera smá sorgmædd. Að hafa Veru ekki sofandi inni í herbergi og geta ekki kíkt á hana af og til sofandi sæta. Alveg klikkað. Og ég eyddi s.s. barnlausu kvöldinu undir teppi að fylgjast með kosningasjónvarpinu með öðru og dottaði inn á milli með hinu. Ég sem ætlaði á kosningadjamm!

Undir morgunn sakanði ég hennar aftur. Það kallaði engin Vera á mig og kom upp í rúm til að kúra og knúsast. En ég komst nú alveg yfir það og svaf eins og steinn fram að hádegi sem hefur ekki gerst í Verutíð.

Ég var búin að gleyma því hvað maður kemur miklu í verk barnlaus. Ég er búin að vera þvílíkt dugleg í dag og tasklistinn styttist um helming á no time. Það er búið að þvo þvottinn endalausa og meira að segja handþvo lopapeysu sem er ekki létt verk, það er búið að kantskera öll beðin og reyta njóla í maaarga svarta ruslapoka, það er búið að fara með haugfulla kerru í Sorpu af drasli úr kjallaranum og garðinum, það er búið að slá garðinn (í fyrsta sinn! gaman gaman - og ekki eitt ofnæmishnerr) það er búið að taka til í íbúðinni niðri sem er á leið í leigu og ganga frá ýmsum öðrum smálegum hlutum sem annars hefði tekið mig ár og aldir með Veru. Svo Veruleysið var ekki all bad. Ó nei.

Klukkan fimm var ég samt aðeins farin að vanta hana og leit í sífellu að bílastæðinu til að athuga hvort að bíllinn afa og ömmu færi nú ekki að renna í hlaðið. Hringdi svo bara í þau til að hætta þessari örvæntingu og fékk þá þær fréttir að þau ætluðu ekki að skila henni fyrr en eftir kvöldmat. Jæja þá. Ég reytti þá bara eitt beð í viðbót í stóra garðinum mínum. Þegar Vera kom heim var hún alsæl, sagði mér sögur af ömmu og afa og Gínu voffa sem ég skildi tæplega, en samt. Og svo fór hún að sofa.

Hvað maður var öflugur barnlaus, sko þegar þreytan var farin eftir hvíldina. Ég fatta samt ekki núna, og er hreinlega búin að gleyma því, hvað maður náði að gera við allan tímann sem maður hafði áður en Vera varð til.

fimmtudagur, maí 25, 2006

Vera 22 mánaða 

Vera á sitt mánaðarlega afmæli í dag.
Hún er orðin svo stór og klár að það er erfitt að halda utan um allt það nýja sem hún tekur upp á og lærir. Hún kann fullt af orðum og talar helling, en ég held að fáir aðrir en foreldrarnir skilji það sem hún segir...


Sæt og fín á leið í jurovisjonparty Posted by Picasa


Já, hún er stærst af Smjattabörnunum - hér má sjá Veru standandi, Gabríel Snæ Emblu- og Gunnarsson sitjandi a kollinum og Freyju Vilborgar- og Rúnarsdóttur í góðu gamni Posted by Picasa

Egó 

Ég er alveg við það að óverdósa af egóbústi.
Eftir gæsunina og brúðkaupið var varla á persónudýrkunina bætandi. En í gærkvöldi (og nótt og alveg undir morgun að sjálfsögðu...) var bætt vel á pakkann þegar ég var kvödd af Gallupvinum mínum. Ég er frábær og æðisleg og allir eiga eftir að sakna mín sárt þegar ég hætti í næstu viku. Ég fékk m.a. að sjá ansi skemmtilegt myndband af fólkinu mínu tala til mín og kveðja mig, gjafir og söng og gítarspil, bara til mín. Ég grenjaði úr mér augun og brosti hringinn um leið.

Ég á svo mikið af flottu fólki allt í kringum mig og er endalaust þakklát fyrir það.

fimmtudagur, maí 18, 2006

Despó 

Var að horfa á grey Silvíu Nótt alltof desperate í að vinna leikinn, tapa júróvisjon og hló innra með mér. Auðvitað! Ég nenni því varla í júróvisjonpartýið á laugardaginn. Hvernig væri að vera bara heima hjá sér for once og tjilla = gera ekkert. Kannski vera desperate og setja í eina vél. Það er húsverk sem aldrei klárast. Ég er búin að vera svo bissí og blaut í maí að það fer sko alveg að koma að ströngu straffi. Eh..eftir Ítalíu sko. Það er óvissuferð annað kvöld og TVÖ (já, stjörnufélagarnir mínir klikka ekki á því að halda prívat stjörnupartý frekar en allir hinir - sjá bloggið "Stjarnan ég" frá því í nóvember ´05) Gallupkveðjupartý fyrir MIG vikuna á eftir, snöktisnökt. En ég er svona frekar desperate í að djamma svo tvö kveðjupartý eru bara hæfilegur skammtur fyrir mig. Svo er ég búin að vera bissí við að gæsast og giftast og halda grillpartý, fara í grillpartý, halda tónleika, fara á tónleika, kantskera garðinn og reita arfa (og komst að því að gróðurofnæmið mitt hlýtur að vera farið þar sem ég hnerraði ekki einu sinni - sem betur fer, enda með rihisa garð) slá og mála. Já, garðvinna á kvöldin er frekar kósí! Soldið húsmóðurslegt, ég veit, en ég fíla það.

Það var líka svolítið despó-húsmó-legt þegar við 4 vinkonurnar sátum inni í stofu í gærkvöldi, sötrandi hvítvín, og föttuðum þó nokkuð seint þegar allt var allt í einu ofurhljótt inni að litlu sætu krakkarnir okkar höfðu stungið af út í garð á stuttermabolunum og sokkaleistunum (sokkaleistar - það er eitthvað svo ömmulegt að segja sokkaleistar!) og voru á kafi að leika sér í sandkassanum og í bílaleik! Við vorum svo djúpt sokknar í vinkonusamræðurnar (nei, ekki í vínið) að við tókum ekki eftir neinu. Krakkanir skildu lítið í þessum mömmum og voru frekar ósáttir við að þurfa að fara inn aftur...

Og nú ætla að fara að horfa á Desperate houswifes, og vera hæstánægð með mig yfir því hvað ég er frábær eiginkona og húsmóðir miðað við þær. Ekkert desperate - nei, neeeeeiiiii.

Hér má sjá litlu ljóshærðu krúttlegu fjórburana okkar - Emil Vilborgar-Helguson, Elísa Elísabetudóttir, Vera Víglunds og Dagur Sóleyjarson.


þriðjudagur, maí 16, 2006

HJÓNIN myndarlegu 



Fengum myndirnar frá ljósmyndaranum okkar áðan. Og ég er ekki að ná því hvað þær eru flottar! Við erum náttúrulega súper trúper falleg og flott á þeim fyrir utan hvað þær eru skemmtilegar og öðruvísi!
Hér er smá tíser... og þið þurfið svo að koma í heimsókn til að sjá meira!
Heitt á könnunni í höllinni.

Sjáumst!
Erla myndarlega brúðurin.

mánudagur, maí 15, 2006

Krossaramegapían ég 

Fyrst ég er búin að vera að breyta alveg óvart um líf undanfarið hálft ár, eins og ég talaði um hér í blogginu Nýtt líf, fannst mér kominn tími til að fá mér líka nýtt áhugamál og eyddi gærdeginum í að mótorkrossast uppi í sveit. Jamm, ég og hossaði mér mjúklega á grýttri braut á krossaranum svilkonu minnar sem er mikill krossaratöffari. Ég skrúfaði bara af mér heilann í smá stund og keyrði eins og ég hefði aldrei gert annað. Og dem hvað ég var að fíla þetta. Nú þarf ég bara að finna pééééninga fyrir tveimur stykkjum krossurum (því EIGINmaðurinn er eiginlega löngu kominn með mótorhjólabakteríuna)og galla og kerru og tryggingum og bílskúr...Þeir hljóta að leynast einhvers staðar undir koddanum.


Eg ad fara a hjolid hennar Helgu Hlinar sem fylgist grant med hvernig eg ber mig ad hehe Posted by Picasa


Viggi a fleygiferd Posted by Picasa


Snullurnar okkar leku ser eins og foreldrarnir - Ulfhildur Jólasveinn Arna Unnarsdottir litla fraenka og Vera Viglunds Posted by Picasa

sunnudagur, maí 14, 2006

Nokkrar myndir 


David Arnar annar hlutinn af veislustjora teaminu okkar sem for a kostum - lika EIGINMADUR. Posted by Picasa


Kolla elsku veislustyran okkar stod sig svo vel - hun er s.s. EIGINKONAN hans Arons sem leggur hana her mjuklega a brjost ser Posted by Picasa


"Viggi" tvitugur toffari... Posted by Picasa


"Eg" thegar eg var 16... Posted by Picasa


Eftir athofnina Posted by Picasa

laugardagur, maí 13, 2006

Tónleikar! 


Ég er svo upptekin af því að vera Frú að ég hreinlega er að gleyma öðrum aðalatriðum í lífi mínu eins og þessum tónleikum sem ég er hluti af á morgun.

Á sunnudagskvöldið kl. 20 í Hásölum (Tónlistarskóla Hafnarfjarðar) mun Guitar Islansio og Kammerkór Hafnarfjarðar (=MOI) halda tónleika á norrænum nótum. Sjitt hvað þessir gæjar eru klárir á hljóðfærin sín og við alveg hreint ágæt á raddböndin. Ég held að sjónvarpsdagskráin sé frekar dræm á sunnudagskvöldið og því alveg tilvalið að gera eitthvað annað og öðruvísi og rúnta hingað í Hafnarfjarðarsveit og hlýða á yndislega tóna.

Ok, ef mér tekst ekki að selja þig inn á tónleikana með þessu þá veit ég ekki hvað. Ekki það að ég búist við að sjá any of you anyways frekar en fyrri daginn - en ég má nú samt til að reyna. Ekki það, það eru alltaf allir tónleikar smekkfullir hjá okkur. Við erum nebblega best.
Vinnum ´dda.

Erla sópranó

föstudagur, maí 12, 2006

Hvar? 

Fólk hefur komið að máli við mig því það sér ekki brúðkaupsbloggið á síðunni eftir að ég setti inn þennan haug af myndum.

Til að geta séð það þurfið þið að smella á maí 2006 hér til vinstri neðst á spássíunni og þá birtast öll blogg í maí.

Gjörið svo vel og takk fyrir.
Frú Erla

fimmtudagur, maí 11, 2006

Myndarleg Vera 

Ég er búin að taka svo mikið af skemmtilegum myndum af múslunni minni undanfarið svo hér fáið þið að sjá hluta.
Vera Víglunds - gleðjumst! (svo ég vitni nú í eitt hræðilega fyndið frumsamið-ljóð-á-staðnum sem flutt var í brúðkaupinu hehe...)

Gjörið svo vel.


Í knúsuleik (og já, miiikið rétt, ég er bæði með nýja hringa og nýtt úr ef þið tókið ekki eftir því ;)) Posted by Picasa


I flugvel Posted by Picasa


Svona getur daman dundad ser to nokkud lengi oft og tidum, vid ad reyna ad thraeda skoreimar i sko, binda og leysa... aftur og aftur... Posted by Picasa


Vera sterka - her er hun med thrjar dukkur i takinu Posted by Picasa


I nyja sandkassanum Posted by Picasa


Vera er nybuin ad fa sandkassa og her er hun ad adstoda pabbann vid ad setja hann saman - hun hefur erft handlagnina fodur sins! Posted by Picasa


Hveitibraudsdagarnir foru fram heima i goda vedrinu - og ju, tid sjaid rett, thetta er EG tharna i baksyn ad rota i bedinu - thvilik sem madur er ordinn myndo eftir ad vera ordin fru... Posted by Picasa


A leid i giftinguna hja mommu og pabba Posted by Picasa


A leid heim i husid Posted by Picasa


Amma Jona, Gina voffi, Vera og afi Siggi Posted by Picasa


Ad vidra voffa Posted by Picasa


Vera og Gina Posted by Picasa


A oruggum stad Posted by Picasa


Tharna var mamman ekki alveg ad fylgjast med i fyrstu... Posted by Picasa


Vera fekk lanad thrihjol og hun er alveg ad na tessu Posted by Picasa


Thessi flottu systkini eru frændsystkin okkar Veru - Axel Kristjan og Silja Bjork Posted by Picasa


Vera og Silja Bjork fraenka ad lesa - afi Axel i baksyn Posted by Picasa


Smile! Posted by Picasa


Tharna langadi Veru i sund... Posted by Picasa


Ad horfa a sjonvarpid Posted by Picasa


Vera ad æfa sig a koppnum - ekki hefur enn komid dropi i hann... Posted by Picasa


Vera hefur svaka gaman ad tvi ad skoda myndaalbum og telja upp tad folk sem hun tar ser Posted by Picasa


Vera er greinilega bjartsynismanneskja - best ad reyna ad troda ser ofan i tessa dollu Posted by Picasa

Vera og Skarphéðinn 

Skarphéðinn stóri frændi kom frá Svíþjóð í heimsókn til okkar um daginn. Hann er 2 1/2 viku eldri en Vera en afi Skarpi er líka afi hans, við Skarpó erum s.s. þremenningar þótt 28 ár séu á milli okkar!

Vera og Skarpó náðu vel saman og gátu skottast eitthvað saman. Mamman náði að sjálfsögðu nokkrum myndum af þeim, enda ekki á hverjum degi sem svona góðir gestir mæta til okkar alla þessa leið.
Við Vera heimsækjum svo Skarpó og fjölskyldu í sumar og getum ekki beðið eftir því!


Á leið saman í sund Posted by Picasa


Pylsa eftir sund er alveg að gera sig Posted by Picasa


Já, þau eru orðin svoooona stór! Posted by Picasa


Halldóra uppáhaldsfrænka og Skarpó Posted by Picasa


Rúsínurnar okkar Posted by Picasa


Úti í garði að leika Posted by Picasa


Stubbaknús! Posted by Picasa


Kissíkissí Posted by Picasa


Vera og Skarpi Posted by Picasa

Mama mia Italia! 

Ítalía nálgast. Það eru aðeins 29 dagar þar til ég flýg á vit ævintýranna til Suður Ítalíu. Alein...með stelpunum. Alein án Vigga og Veru. Í heila 9 daga takk fyrir verði ykkur að góðu.

Sorrento er staðurinn - svo fallegur og girnilegur. Og það er alveg spurning hvort ég nái að rifja upp einhverja ítölskutakta í tæka tíð. Ég ætla mér alla vega að geta pantað kokteil og hvítvín á ítölsku og hver veit nema það rifjist upp einhverjar pikkupp línur fyrir mér, en þær fékk ég soldið að heyra á sínum tíma í Suður Sviss. Jafnvel þótt Viggi hafi verið að vinna við hliðina á mér! Og svo var ég líka kölluð bionda (ljóshærð), jeminn hvað ítölsku súkkulaðigæjarnir voru stúpídó hehe.

Þetta verður ekta pæjuferð en við 8 MH vinkonurnar verðum allar þrítugar á árinu og höldum upp á það með þessari ferð sem við höfum safnað skipulega fyrir í langan tíma. Svo það verður meira að segja þó nokkur afgangur til að eyða í kokteila og ítalskt spa þegar búið er að greiða flug og gistingu. Já, við erum ALLAR svona flottar og skipulagðar. Ímyndið ykkur bara sex&city fíling aldarinnar og okkur skvísurnar berleggjaðar í blómakjól í tásluskóm, með kokteil í annarri og vino bianco í hinni...mmmmmmmmmmm...

Lína daxins: Che bellissima sei! - Tante grazie, lo so. (En hvað þú ert falleg! - þakka þér fyrir, ég veit það.)


miðvikudagur, maí 10, 2006

Brúðkaupsdagurinn minn 

Það eru þó nokkrir sem hafa spurt mig hvort ég sé hreinlega hætt að blogga eftir að ég varð Frú. Ó, nei. Ég var bara í þrítugsafmælis- og giftingarfríi. Í honnýmún í Hafnarfirðinum hafandi það kósí í hitabylgjunni. Og hér er það komið, fyrsta frúarbloggið mitt.

Ég veit bara varla hvar ég á að byrja. Það er svo margt búið að gerast og frá svo mörgu ólýsanlegu að segja. Svolítið erfitt!

6. maí var yfirnáttúrulega æðisgenginn dagur. Afmæli og gifting. Dagurinn byrjað á því að Vera og Viggi sungu fyrir mig afmælissönginn á sinn falska en fallega hátt. Það eitt hefði dugað mér fyrir daginn, svo yndislegt var að vakna við sönginn. Vera kom okkur foreldrunum á óvart með því að nánast kunna afmælissöngin eftir að hafa horft á Lilla apa taka það nokkur hundruð sinum í Brúðubílnum í sjónvarpinu.
En það var stór dagur framundan. Greiðsla, meiköpp og græja litlu dömuna um leið. Sólin skein sem gaf deginum og okkur extra glans og gleði.

Kirkjuathöfnin var svo yndisleg. Kórinn grætti alla gestina með sínum unaðslega söng en alls voru sungin 5 lög. Ave Verum eftir Mozart en þar var líka spilað undir á selló, fiðlu og orgel. Þá söng elskuleg mágkona mín og vinkona Á brúðkaupsdegi með kórinn í bakgrunni og svo tókst mér líka að fá nokkra til að kjökra allverulega með óvæntri uppákomu. Já, auðvitað varð ég að fá að láta ljós mitt skína og tók lagið fyrir Vigga. Ást var það. Engin Ragnheiður Gröndal en samt. Ég átti bágt með þetta og hélt á tímabili að hjartað á mér ætlaði út úr líkamanum á mér, helst út um eyrun. Úff! Ég kramdi brúðarvöndinn og reyndi að halda augunum lokuðum, því í hvert sinn sem ég kíkti sá ég Vigga þerrandi tárin - og ólíklegasta fólk sniffandi. Af gleði vonandi. Jú, ég held það. Þetta var allt eitthvað svo hrikalega magnað í kirkjunni. Þegar ég stóð óvænt upp til að syngja þá fékk ég svipinn frá Vigga um að setjast aftur, ég væri ekki alveg að gera þetta rétt sem við æfðum saman í kirkjunni daginn áður. Það átti sem sagt ekki að standa upp þarna. Síðar sagði hann mér að hann vissi ekkert hvað ég var að fara að gera, hann spáði í því að standa sjálfur upp og einnig hvarflaði sú hugsun að honum í eitt agnaraugnablik að daman hans væri bara hætt við og farin! Hehe, ekki alveg. Bara athyglissjúk og einlæg um leið.

Eftir vígsluna og kossinn góða söng kórinn mjög fallega útsetningu af Faðir vorinu og að lokum rokkaði einn tenórinn snilldarlega Þú fullkomnar mig ásamt því að spila undir á gítar.

Athöfnin endaði svo með meira stuði þar sem kórinn tók This little light of mine sem útgöngulag og við mikinn fögnuð. Mig langaði hreinlega ekki að enda þetta, svo við stóðum nokkur erindi uppi á altari og nutum stundarinnar. Tjúttuðum svo við klapp og söng út.

Myndatakan var hluti af þessum skemmtilega pakka, en þar fórum við í pikknikk, pósuðum á gömlum heyvagni á Garðaholti og fórum í fótbolta! Fáum myndirnar í næstu viku.

Svo byrjaði partýið. Partýbrúðkaup ársins ef ekki bara aldarinnar. Jeminn hvað það var gaman. Sem dæmi komu bæði Kátir Piltar á staðinn og tóku Brennivínsþokuna með Vigga og félögum og idolið mitt hún Helga Möller mætti á svæðið. Hún tók okkur Vigga með sér í Gleðibankann og söng Dans, dans, dans á meðan við tókum okkar fyrsta dans sem ekta hjón. Ólýsanlega fræbært! Veislustjórunum og öllum þeim sem töluðu til okkar tókst snilldarlega að koma okkur á óvart, hvort sem er með fallegum og fyndnum orðum, söng, frumsömdum ljóðum, myndasjói, vídeói eða dansi. Við Viggi tókum virkan þátt í gleðinni, ég get ekki talið það hversu oft ég t.d. greip fram í ræðurnar eða þurfti að standa uppi á stól af spenningi.

Svo þurfti ég náttlega að koma mér aftur að, en ég var fyrir löngu búin að ákveða að vera með gigg í mínu eigin brúðkaupi. Smellti mér úr brúðarkjólnum og í partýgallan og tók Erlu SigurNótt (eða Erlu Bride eins og ein vinkonan stakk upp á að skíra mig hehe) fyrir Viggann. Textinn er snilld en ég á aðeins nokkrar línur í honum. Fékk smá aðstoð frá hagyrðum vinnufélaga og OMG hvað þetta var gaman!

Til gamans getið þið sem viljið aftur komast í gírinn sungið þetta með Silvíu Night:

Ókei!
Hei, þú ógeðslega töff é’r að tala við þig
Ég er Erla Sig og hef útlitið
Ég veit þú þráir mig
Born in Havenfjord en samt enginn nörd, bara risastór bird
Stærr’en þú, það er bara kúl, þú ert mitt litla rassgat

Til hamingju Viggi með að ég giftist þér
Ég er Erla Sig og skalt halda mér
Þó Lundi sé verkstjórinn í vinnunni
Heima heldur Erla Sig, á svipunni
Töff, töff, töff

Alltaf, í vinnunni ert og fólkið mig spyr
Hvenær tími var, fyrir stellingar
og Veru framkvæmdar
Og svo keyptum við litla álfapleisið sem þú breyttir í höll
Svo rosa klár, þó soldið smár, litli sæti Bubbi byggir

Til hamingju Viggi með að ég giftist þér
Ég er Erla Sig og þú skalt halda mér
Þó Lundi sé verkstjóri í vinnunni
Heima heldur Erla Sig, á svipunni
Je, je je

Viggi, til hamingju Viggi, til hamingju Viggi,
til hamingju Viggi, til hamingju Viggi, til hamingju Viggi,
til hamingju Viggi, til hamingju Viggi

Ring ring... Já, hæ - eridda Vigga? Hæ, þetta er Erla hérna. Ég ætlaði bara að segja þér hvað þú ert ógeðslega heppinn eiginmaður, ókey baaaaaaííí!

Til hamingju Viggi með að ég giftist þér
Ég er Erla Sig og þú skalt halda mér
Þó Lundi sé verkstjóri í vinnunni
Heima heldur Erla Sig, á svipunni
Töff, töff, töff

SÍÐASTA VIÐLAG MEÐ SMÁ BREYTINGU

Til hamingju Viggi með að ég giftist þér
Ég er Erla Sig og þú skalt halda mér
Það er svo margt sem ég vil þér gefa
En þó muntu aldrei fá, vélsleða
Töff, töff, töff


Við fórum síðust út úr húsi um hálffimm leytið eftir að hafa dansað og drukkið alla nóttina. Við HJÓNIN fórum heim.
Í sjöunda himni á bleiku skýi.

TAKK allir þeir sem gerðu daginn okkar að þeim besta mögulega brúðkaupsdegi ever.
Og hér sit ég í höllinni minni og horfi á öll fínu málverkin okkar og allt hitt flotta dótið sem við fengum að gjöf. Og klægjar í puttana að fá að eyða gjafakortunum í eitthvað fínt í Epal...Jömmí!

Ég vildi að maður gæti átt svona upplifun alla vega einu sinni á ári. Nei, ekki gjafanna vegna hehe - þetta er bara svo mikið kikk og klikk gaman. En þessi upplifun verður alls ekki endurtekin því glætan að maður skilji nokkurn tímann við EIGINMANNINN - no way, hehe.
Og þetta er sem betur fer allt til á vídeó þótt ég leggi nú ekki enn í að horfa á það.

Brúðkaupdagurinn minn mun líka lifa að eilífu í minningunni.


 Posted by Picasa

föstudagur, maí 05, 2006

Úr Fröken í Frú 

Jæja, þá kveður Fröken Erla perla þar sem hún verður orðin Frú næst þegar hér kemur við sögu á síðunni. Í dag er einnig síðasti dagurinn sem 29 ára. Ég verð s.s. orðin þrítug Frú næst þegar við hittumst. Settleg og prúð, háttvís og kurteis. Eða eitthvað.

Hlakka til að sjá ykkur á morgun í giftingunni góðir gestir!
Kv,
Fröken Erla.

mánudagur, maí 01, 2006

Tilbúin, viðbúin... 

Ég ætla beinustu leið á morgun að kaupa mér vatnsheldan maskara fyrir stóra daginn. Ég hló að meiköppdömunni minni um daginn þegar hún stakk upp á að ég myndi kaupa einn slíkan. Ég var á æfingu með kórnum mínum sem ætlar að syngja í athöfninni í brúðkaupinu MÍNU á laugardaginn kemur og það var svo ólýsanlega æðislega fallegt og breath taking og hjartnæmt.. og bara öll falleg lýsingarorð sem lýsa því yndislega sem gefur manni gæsahúð og smá tár í augun og kökk í hálsinn. Og ég ætla ekki að vera týpan með svartar slykjur í andlitinu uppi á altari.
En örvæntið eigi, því það verður líka stuuuuuuð!

Já, það fer að koma að því. 4 dagar í 6. maí. Þá verð ég þrítug gift kona. En ég vil samt taka það fram og hafa það á hreinu að ég gifti mig samt fyrir þrítugt, eða 29 ára, þar sem athöfnin byrjar kl. 17:30 og við gefin saman svona sirka tíu mínútur í sex, og ég verð ekki þrítug fyrr en nákvæmlega kl. 18:01 þann dag.

Undirbúningurinn gengur vel. Mér finnst gaman að hafa mikið að gera og hafa fullt á prjónunum. Veit hreinlega ekki hvað ég á að hugsa um eða skipuleggja eftir að þessu lýkur! Ég er búin að stensla út um það bil illjón fiðrildi og er ansi aum í lófanum eftir það, ásamt því að sníða hauginn af tjulli til skreytinga. Kjóllinn er reddí, neglur á morgun, prufugreiðsla hinn, salurinn svo...spennan magnast!

En maskarinn verður for sure keyptur á morgun.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

eXTReMe Tracker